• 11/01/2023

Enn einu sinni er janúar mættur og er meira að segja næstum hálfnaður. Ég tók, eins og áður, nokkrar myndir á árinu sem leið og mig langar að deila nokkrum þeirra með ykkur.

Af ýmsum ástæðum standa þær upp úr hjá mér. Það geta verið sterkar (yfirleitt góðar) minningar sem tengjast þeim, í einhverjum tilfellum eru þetta myndir sem ég mundi varla eftir að hafa tekið en stukku á mig þegar ég var að kíkja yfir myndir frá árinu, aðrar finnst mér bara einfaldlega vera flottar.

Svo er þarna ein sjálfsmynd líka. Samt meira svona sjálfshópmynd. Eða hópsjálfsmynd.

Hér eru þær, í handahófskenndri röð og án útskýringa.

Megi árið 2023 vera ykkur farsælt á alla vegu!

Loka