• 31/12/2019

Árið 2019 var mér gjöfult þegar kemur að ljósmyndun. Ég fékk tækifæri til að mynda margt skemmtilegt og áhugavert, m.a. mat, leiksýningu, tónleika, ungt fólk og gamalt, svo eitthvað sé nefnt. Stundum lagði ég myndavélina þó bara til hliðar og naut þess sem fyrir augu bar. Það getur verið ágætt líka.

Það sem stendur upp úr á árinu er einfalt. Ég fékk tækifæri til að mynda villt dýr í Suður-Afríku. Fíla, ljón, nashyrninga, blettatígra, ýmsar fuglategundir… Hefði stokkið út aftur daginn eftir að við lentum á Íslandi, hefði það verið í boði.

En nóg af þvaðri. Hér eru myndir sem mér þóttu á einhvern hátt standa upp úr á árinu. Engar útskýringar, bara myndir.

Njótið – og eigið gleði- og gæfuríkt ár framundan!

Loka