• 10/11/2017

Í lok september brá ég undir mig betri fætinum og fór á Hvolsvöll. Tilgangurinn var að fara á Kötlu Mathús, sem er í sömu byggingu og LAVA Centre, að taka myndir af húsgögnum og eldhúsbúnaði sem Bender ehf flutti inn frá Vega og Poggemeier.

Þegar við Jón Bender, framkvæmdastjóri, vorum orðnir sáttir við dagsverkið valdi hann úr myndunum, ég fullvann myndirnar og útbjó bók sem hann síðan dreifði til viðskiptavina sinna.

Þá sjaldan ég mynda fasteignir og innanstokksmuni finnst mér það yfirleitt skemmtilega krefjandi. Það er nefnilega vonlaust að ætla að segja vegg að færa sig aðeins meira til hægri eða stól að horfa meira í átt að glugganum. Þetta dót hlýðir engu.

Já, það er ýmislegt sem maður tekur sér fyrir hendur. Í síðustu viku voru það matjurtir og á morgun brúðkaup á Þingvöllum.

Loka