• 12/09/2014

Meniga er fyrirtæki sem hefur stækkað gríðarlega hratt að undanförnu.  Þegar ég var fyrst beðinn um að taka myndir af starfsfólki fyrirtækisins, fyrir tæpu ári síðan, var vel rúmt um alla. Núna er olnbogarýmið sama og ekkert.

Ég hélt fyrst að verið væri að biðja um þessar “venjulegu” starfsmannamyndir (andlit og eitthvað niður fyrir axlir), svo það var óvænt ánægja þegar ég fékk að vita að Meniga vildi þær ekki, heldur var óskað eftir einhverju öðruvísi, einhverju frjálslegra – t.d. myndum af fólki að vinna, að drekka kaffi, eða bara að taka sér stutt hlé frá erli dagsins.

Nú þegar ég er búinn að mynda góðan slatta af fólki (hátt í 100 manns), og nýi vefurinn þeirra löngu kominn í loftið, finnst mér kominn tími til að sýna eitthvað af þessum myndum.

Njótið – og hafið endilega samband þegar ykkar fyrirtæki vantar nýjar starfsmannamyndir.

Einar Þór.
Einar Þór.
Hrefna.
Vigdís.
Calum.
Calum.
Einar Óli.
Einar Óli.
Ivana.
Ivana.
Sigurbjörn.
Sigurbjörn.
Lasse.
Lasse.
Einar Máni.
Einar Máni.
Hrefna.
Hrefna.
Jón Orri.
Jón Orri.
Bryndís.
Bryndís.
Bragi.
Bragi.

 

Loka