• 06/02/2014

Undirbúningur fyrir fermingar er kominn á fullt á fjölmörgum heimilum.  Inn um bréfalúgurnar streyma tilboð frá veisluþjónustum og fleiri aðilum sem hafa upp á ýmislegt að bjóða.  Ég ætla mér ekki senda auglýsingar inn um bréfalúguna þína, en það er ekki þar með sagt að ég hafi ekki upp á neitt að bjóða.  Ég get tekið skemmtilegar og eigulegar ljósmyndir af fermingarbarninu þínu.

Hér fyrir neðan eru myndir sem gætu gefið þér hugmyndir að því hvernig hægt væri að mynda fermingarbarnið, og á vefnum getur þú séð hvað fermingarpakkarnir kosta og hvað þú færð fyrir peninginn. Enn fleiri dæmi um einstaklingsmyndir eru í portrett safninu mínu – skoðaðu það endilega líka.  Í myndasafninu mínu eru reyndar fáar eiginlegar fermingarmyndir – sem skýrist einfaldlega af því að ég lærði ljósmyndun í Kanada og er nýfluttur heim.

Hvernig myndir vilt þú af fermingarbarninu þínu?  Og það sem er ekki síður mikilvægt, hvernig fermingarmyndir vill unglingurinn þinn fá?  Viljið þið myndir á íþróttavelli?  Á hestbaki?  Úti í skógi?  Niðri í fjöru?  Uppi á jökli?  Inni?  Úti?  Við finnum saman góðar hugmyndir og látum ekkert stöðva okkur!

Ég hlakka til að heyra frá þér!

Fermingarstúlka í Hörpu.
Ásdís fermingarstúlka í Hörpu.
Fermingarstúlka í Hörpu.
Ásdís fermingarstúlka í Hörpu.
Fermingarstúlka í Hörpu.
Ásdís fermingarstúlka í Hörpu.
Ung stúlka í stúdíói.
Kyla.
Ung stúlka í stúdíói.
Veronique.
Básúnuleikari úti í skógi.
Jared básúnuleikari úti í skógi.
Ungur herramaður í stúdíói.
Daniel.
Ung stúlka í stúdíói.
Avery.
Ung stúlka í stúdíói.
Molly.
Ung stúlka úti.
Rowan.
Ung stúlka í stúdíói.
Megan.
Ung stúlka í heimamyndatöku.
Guðrún Elfa í heimamyndatöku.
Ungur herramaður í stúdíóí.
Daniel í stúdíói.
Ungur herramaður í stúdíói.
Márus í stúdíói.
Ungur íþróttamaður í stúdíói.
Ungur íþróttamaður í stúdíói.
Sellóleikari sem fílar Eurovision.
Sellóleikari sem fílar Eurovision.
Ungur básúnuleikari í stúdíói.
Ungur básúnuleikari í stúdíói.
Loka