• 07/09/2013

Síðasta fjölskyldumyndatakan mín í Victoria fór fram í Beacon Hill almenningsgarðinum í júní.  Þar myndaði ég góða vini okkar, Harris fjölskylduna, sem eru Beth, Wyatt, Charlotte, Oliver og amma Linda.  Og, já, ég má ekki gleyma tíkinni Maize.  Beth og Wyatt höfðu gift sig í garðinum ellefu árum áður og því fannst þeim tilvalið að skella sér í fjölskyldumyndatöku þar áður en þau misstu ljósmyndarann “sinn” úr landi.

Eins og venjulega á þessum árstíma, snemma í júní, var yndislegt veður.  Eiginlega of gott ef eitthvað var.  En maður má víst ekki segja svoleiðis upphátt í viðurvist gegndrepa, sólarsveltra Íslendinga.

Við tókum okkur góða tvo tíma í myndatökuna, þar sem við reyndum m.a. að endurgera ljósmynd sem þau hjónin hafa uppi á vegg.  Þar liggja þau þau á maganum og eru með börnin, þá pínulítil, á bakinu.  Eftirá sagði Beth að þetta yrði líklega í seinna skiptið sem svona mynd yrði tekin – ekki í annað skiptið af mörgum – þar sem henni fannst Oliver orðinn fullþungur.

 

The Harris family in Victoria

The last family shoot I did in Victoria before moving back to Iceland was in Beacon Hill Park in June.  There I photographed good friends of ours, the Harris Family: Beth, Wyatt, Charlotte, Oliver and grandma Linda.  Oh, and I mustn’t forget their dog, Maize.  Beth and Wyatt had gotten married in the park eleven years earlier, and so decided to go for a family photo shoot there before “their” photographer left the country.

As usual at this time of year, the weather was wonderful.  Even too good, if anything.  Meanwhile Iceland was being rained on quite heavily – almost nonstop throughout the summer, in fact – so I’ll try not say that out loud.

We managed a good two hour session, where we , among other things, tried to replicate a photo Beth and Wyatt have on their wall, where they are lying on the ground and the kids, tiny at the time, are lying on their parents’ back.  Beth decided afterwards that this would be the last time this would be done – instead of the second of many – as Oliver was already becoming a bit too heavy.

 

Harris fjölskyldan á grasbala.
Harris fjölskyldan á grasbala.
Amma Linda með barnabörnunum sínum.
Amma Linda með barnabörnunum sínum.
Beth og Wyatt.
Beth og Wyatt.
Charlotte með pabba sínum, Wyatt.
Charlotte með pabba sínum, Wyatt.
Beth og Oliver.
Beth og Oliver.
Charlotte, Olive og Maize
Charlotte, Oliver og Maize
Wyatt alveg að fara að henda Charlotte út í tjörn.
Wyatt alveg að fara að henda Charlotte út í tjörn.
Öll hersingin gengur yfir stóru steinbrúna í Beacon Hill Park, brúna sem Beth kom gangandi yfir í brúðarkjól ellefu árum áður.
Öll hersingin gengur yfir stóru steinbrúna í Beacon Hill Park, brúna sem Beth kom gangandi yfir í brúðarkjól ellefu árum áður.
Maize.
Maize.
Á tjörnunum í Beacon Hill Park eru engir mávar.
Á tjörnunum í Beacon Hill Park eru engir mávar.
Harris fjölskyldan á brúarhandriði.
Harris fjölskyldan á brúarhandriði.
Loka